23.08.26 - 11:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einar Karl tekur annað tímabil með Haukum

Einar Karl Ingvarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Karl Ingvarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur ákveðið að taka annað tímabil með Haukum.
Hafnarfjarðarfélagið tilkynnir það í dag að Einar Karl hafi skrifað undir framlengingu á samningi sínum út næsta tímabil.

Einar Karl er 32 ára og er uppalinn í FH. Hann hefur einnig spilað með Fjölni, Val, Stjörnunni og Grindavík á ferlinum.
Einar Karl hefur verið í lykilhlutverki fyrir Hauka í 2. deildinni í sumar þar sem hann hefur spilað 18 leiki og skorað þrjú mörk.
Haukar geta í dag tryggt sig upp úr 2. deildinni en liðið er í mjög góðri stöðu. Það eru því talsvert miklar líkur á því að Einar Karl og félagar hans spili í Lengjudeildinni næsta sumar.