23.08.26 - 20:38
Brynjar Ingi Erluson
„Ekki séns“ að Hall fari til Man Utd

Lewis Hall er ekki á förum frá Newcastle

Mynd: EPA

Lewis Hall er ekki á förum frá Newcastle

Mynd: EPA
Matthias Jaissle, nýr stjóri Newcastle United, segir engar líkur á því að vinstri bakvörðurinn Lewis Hall fari til Manchester United fyrir lok gluggans.
Manchester United leitar að liðsauka í bakvarðarstöðuna og hefur hinn 21 árs gamli Hall verið sterklega orðaður við félagið.
Peter Schmeichel, fyrrum markvörður United, sagði við Jaissle í útsendingu Viaplay að félagið hefði augastað á vinstri bakverðinum hans.
Þjóðverjinn var fljótur að útiloka þann möguleika.
„Ekki séns. Það er enginn möguleiki á því,“ sagði Jaissle og hló.
Man Utd er einnig sagt áhugasamt um Alejandro Balde hjá Barcelona, en félagið er í sambandi við umboðsmann leikmannsins sem vill fara frá spænska félaginu.

???? Peter Schmeichel to Newcastle manager Matthias Jaissle:
— United Zone (@ManUnitedZone) August 23, 2026
“We’re looking at your left-back [Lewis Hall]”
Jaissle: “No chance. No chance.” ????
[@Viaplay] pic.twitter.com/WO6ug1HyAk