23.08.26 - 17:34
Brynjar Ingi Erluson
England: Hádramatík þegar Szoboszlai bjargaði stigi fyrir Liverpool

Dominik Szoboszlai skoraði jöfnunarmarkið á lokasekúndum leiksins

Mynd: EPA

Joe Willock kom Newcastle yfir stuttu eftir jöfnunarmark Gakpo

Newcastle 2 - 2 Liverpool
1-0 Anthony Elanga ('5 )
1-1 Cody Gakpo ('55 )
2-1 Joseph Willock ('57 )
2-2 Dominik Szoboszlai ('90, víti )
1-0 Anthony Elanga ('5 )
1-1 Cody Gakpo ('55 )
2-1 Joseph Willock ('57 )
2-2 Dominik Szoboszlai ('90, víti )
Liverpool bjargaði stigi með marki úr vítaspyrnu á síðustu sekúndunum í dramatísku 2-2 jafntefli gegn Newcastle United í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á St. James' Park í dag.
Andoni Iraola stýrði Liverpool í fyrsta keppnisleik sínum eftir að hafa tekið við af Arne Slot í sumar. Það sama gilti um Matthias Jaissle sem tók við Newcastle af Eddie Howe.
Heimamenn voru tæpar fimm mínútur að komast yfir eftir hraða skyndisókn. William Osula laumaði boltanum inn fyrir vörn Liverpool á Anthony Elanga sem afgreiddi færið snyrtilega niðri í vinstra hornið.
Newcastle var líflegra liðið í fyrri hálfleiknum og lítið gekk hjá Liverpool. Florian Wirtz fékk hættulegasta færi gestanna en tékkneski markvörðurinn Lukas Hornicek varði frá honum.
Alexander Isak sneri aftur á St. James' Park eftir erfið og umdeild félagaskipti hans til Liverpool síðasta sumar. Endurkoman var lítið eftirminnileg og sást varla til hans fyrstu 45 mínúturnar.
Meira líf færðist í Liverpool eftir hlé og liðið jafnaði þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Ryan Gravenberch fann landa sinn Cody Gakpo á milli línanna. Gakpo tók nokkur skref áfram og hamraði boltanum utan teigs niður í vinstra hornið.
Stórglæsilegt mark hjá Gakpo sem gæti hafa verið að leika sinn síðasta leik fyrir Liverpool, en hann hefur verið sterklega orðaður við Tottenham.
Liverpool náði þó ekki að byggja ofan á jöfnunarmarkið og Newcastle komst aftur yfir innan við tveimur mínútum síðar. Yoane Wissa fór illa með Dominik Szoboszlai og Wirtz áður en hann keyrði óáreittur fram völlinn og renndi boltanum á Joe Willock. Hann plataði Jeremy Jacquet og skoraði með góðu skoti í hægra hornið.
Slakur varnarleikur hjá Liverpool en mikill kraftur í Newcastle-liðinu sem var líklegra til að bæta við næstu mínúturnar.
Liverpool færðist framar þegar leið á leikinn og setti aukna pressu á heimamenn. Varamaðurinn Victor Munoz kom með gott líf inn í sóknarleikinn og átti meðal annars skot sem Sven Botman komst fyrir.
Þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af fimm mínútna uppbótartíma dró til tíðinda. Munoz fór í einn á einn gegn Lewis Hall sem setti hnéð klaufalega í veg fyrir hann og felldi Spánverjann. Dómarinn benti á vítapunktinn og var það réttur dómur.
Szoboszlai steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi með föstu skoti efst í vinstra hornið. Liverpool hafði bjargað stigi á síðustu sekúndunum og enn á ný bauð viðureign þessara liða upp á mikla dramatík.
Mikill léttir fyrir Iraola að fara með stig úr fyrsta leik sínum við stjórnvölinn.
Liverpool tekur á móti Nottingham Forest á Anfield eftir sex daga. Newcastle mætir WBA í enska deildabikarnum eftir þrjá daga og Tottenham þremur dögum síðar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Brighton | 1 | +4 | 3 |
| 2 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 3 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 4 | Everton | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 6 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Man City | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Liverpool | 1 | 0 | 1 |
| 10 | Newcastle | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Bournemouth | 1 | -1 | 0 |
| 14 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Nott. Forest | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Crystal Palace | 1 | -2 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 18 | Tottenham | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Aston Villa | 1 | -4 | 0 |