23.08.26 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson
Framtíð Grealish óráðin

Jack Grealish í leiknum gegn Bournemouth í dag

Mynd: EPA

Jack Grealish, leikmaður Manchester City á Englandi, gæti yfirgefið félagið fyrir gluggalok.
Englendingurinn hefur verið með Manchester City á undirbúningstímabilinu eftir að hafa eytt síðustu leiktíð á láni hjá Everton.
Hann kom inn á þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af 2-1 endurkomusigrinum á Bournemouth í dag. Enzo Maresca, stjóri City, var spurður út í framtíð hans eftir leikinn.
„Svo lengi sem Jack er hér er það mitt hlutverk að þjálfa hann og reyna að ná því besta fram úr honum.“
„Það er ein vika eftir af félagaskiptaglugganum og við sjáum hvað gerist. Það á ekki aðeins við um Jack heldur einnig aðra leikmenn,“ sagði Maresca.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum kemur vel til greina að Grealish yfirgefi félagið fyrir lok gluggans. Hann var orðaður við Atlético Madríd fyrr í mánuðnum en gæti einnig haldið áfram í ensku úrvalsdeildinni hjá öðru félagi.