Fotbolti.net
23.08.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

„Gefumst aldrei upp“

Szoboszlai fagnar jöfnunarmarkinu

Szoboszlai fagnar jöfnunarmarkinu

Canon

Mynd: EPA

Dominik Szoboszlai, leikmaður Liverpool, segir að liðið muni aldrei gefast upp og að sá baráttuandi sé eitt það helsta sem leikmennirnir hafi lært undir stjórn Andoni Iraola.
Einkunnir Newcastle og Liverpool: Vondur dagur hjá bakvörðunum
TENGT EFNI

Einkunnir Newcastle og Liverpool: Vondur dagur hjá bakvörðunum

Ungverjinn skoraði jöfnunarmark Liverpool úr vítaspyrnu þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af 2-2 jafnteflinu gegn Newcastle.

Brotinn var á Victor Munoz innan vítateigs og Szoboszlai skoraði af miklu öryggi. Frammistaða liðsins í leiknum var annars ekkert sérstök en hann telur að Liverpool hafi átt skilið að fara með öll þrjú stigin.

„Ef ég á að vera hreinskilinn heyrði ég ekki einu sinni þegar dómarinn flautaði. Ég þurfti að horfa á hann og bíða eftir grænu ljósi áður en ég tók spyrnuna. Ég æfði vítaspyrnur mikið á undirbúningstímabilinu en við fengum engar í æfingaleikjunum. Við verðum að taka það jákvæða úr þessu og halda áfram.“

„Meira en 50 þúsund stuðningsmenn eru á móti þér og maður heyrir varla í sjálfum sér. Það er einmitt þess vegna sem ég elska að spila fótbolta.“

„Það er alltaf erfitt að koma hingað. Allir vita hversu frábærir stuðningsmenn Newcastle eru. Liðið er mjög gott og stjórinn sömuleiðis. Hann er nýr hér en hefur sannað sig hjá mörgum öðrum félögum.“

„Við vorum undirbúnir en undir stjórn nýs þjálfara þurfum við að standa þéttar saman og átta okkur betur á því sem er að gerast í leiknum. Það jákvæða er að við náðum að koma til baka eftir að hafa lent 2-1 undir.“

„Við áttum að vinna leikinn en svona er fótboltinn. Enginn leikur í ensku úrvalsdeildinni er auðveldur, sama hver mótherjinn er. Við þurfum að hafa það í huga fyrir næsta leik.“


Szoboszlai var einnig spurður hvað hann hefði helst lært af Iraola og nefndi baráttuandann.

„Að við gefumst aldrei upp. Ég get lofað því að við munum berjast fram á síðustu sekúndu. Allir sem komu inn af bekknum höfðu áhrif og því þurfum við á öllum hópnum að halda. Við verðum að vera tilbúnir,“ sagði Szoboszlai.
Szoboszlai segist hafa lært ýmislegt af Iraola

Szoboszlai segist hafa lært ýmislegt af Iraola

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.