Fotbolti.net
23.08.26 - 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Haraldur Freyr: Í fyrsta sinn í sumar

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson.

Haraldur Freyr Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður frábærlega með úrslitin. Mér fannst seinni hálfleikurinn ekkert sérlega vel spilaður hjá okkur en við erum gríðarlega ánægður með þrjú stig og sigur," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 1-0 sigur gegn ÍBV í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 ÍBV
Keflavík skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en frammistaðan í seinni hálfleiknum var ekki frábær.

„Þetta var kaflaskipt. Við vorum aðeins ofan á í fyrri hálfleik og þeir svo í seinni. Það er eins og við séum aðeins að bíða eftir því að eitthvað gerist, eins og við tökum ekki alveg leikinn og séum frekar að bíða eftir því að hann komi til okkar. ÍBV gengur á lagið og við áttum erfitt með að tengja saman sendingar. Við náðum samt að klára þetta."

Þessi sigur gerir mikið fyrir Keflvíkinga sem eru í dauðafæri að komast í efri hluta deildarinnar þegar hún skiptist.

„Þetta er í fyrsta sinn í sumar þar sem við náum að tengja saman sigra. Í fyrsta sinn í sumar þar sem við vinnum tvo leiki í röð. Það er gott. Við erum í dauðafæri til þess að enda í topp sex."

Það er svolítið mögnuð staðreynd miðað við hvað Keflavík hefur spilað vel í sumar að þetta sé í fyrsta sinn þar sem liðið vinnur tvo leiki í röð.

„Það er gott að tengja saman sigra og vonandi náum við að vinna þriðja leikinn."

Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.