Fotbolti.net
23.08.26 - 19:10
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Haukar tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni - „Fjórða skiptið sem ég fer upp um deild"

Auglýsing
Haukar tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni - „Fjórða skiptið sem ég fer upp um deild"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni með 5-2 sigri á Dalvík/Reyni í 19. umferð 2. deildar. Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Haukar 5 - 2 Dalvík/Reynir

„Bara stoltur og smá meyr, en þetta er bara fyrra markmiðið. Markmiðið er að vinna deildina og við eigum það eftir. Við höldum áfram." 

„Auðvitað er aðal markmiðið að komast upp um deild, en við hins vegar ætluðum alla tíð að vinna þessa deild og við ætlum að klára það líka."

Einar Karl Ingvarsson framlengdi við Hauka í morgun.

„Ótrúlegt, það er gæfa að njóta þess að fá hann hingað og Pablo, Jón, Gulla og fleiri lykil pósta sem komu og hafa gefið okkur dýrmæta reynslu og í bland við auðvitað marga uppalda Hauka stráka hérna í dag. Við erum ótrúlega heppnir með þennan hóp sem við erum komnir með og margir að bætast við núna. Við þurfum að huga vel að því næsta tímabil að vera með sterkan og góðan kjarna sem leiðir þetta, en bara ótrúlega flottur hópur hjá mér."

Gaui segir að reynslan muni nýtast vel á næsta tímabili í Lengjudeildinni.

„Já alveg klárlega. Margir af strákunum hafa gert þetta oft áður, þetta er núna fjórða skiptið sem ég fer upp um deild sem þjálfari og leikmaður. Það er kominn ágætis reynsla í þetta, við vitum alveg að við þurfum að gefa enn þá meira í ef við ætlum að gera vel á næsta ári."

Óskar Örn spilaði í síðasta leik gegn Kormáki/Hvöt. Tekur hann upp skóna fyrir Lengjudeildina?

„Hann er bara alltaf með á æfingum og alltaf til taks, það er búið að vera smá halli á okkur, fimm-sex meiddir. Við ákváðum að henda honum inn, það vantaði smá reynslu og völlurinn fyrir norðan var þannig að við vildum hafa smá þunga á kantinum sem getur haldið í boltann vel. Óskar er ótrúlegur leikmaður og búin að vera ótrúlegur partur af þessari vegferð með mér líka, sama með Daða."

Haukar tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni - „Fjórða skiptið sem ég fer upp um deild"
Canon

Mynd: Haukar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.