Fotbolti.net
23.08.26 - 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Sturlað mark Adams dugði ekki gegn Milan - Atalanta og Juventus unnu

Bremer tryggði Juventus sigur á Frosinone

Bremer tryggði Juventus sigur á Frosinone

Canon

Mynd: EPA

Atalanta, Juventus og Milan unnu öll leiki sína í 1. umferð Seríu A á Ítalíu í dag.
Atalanta vann Sassuolo, 2-1, en Giacomo Raspadori þurfti aðeins sex mínútur til að opna markareikning sinn. Gianluca Gaetano laumaði boltanum inn fyrir vörnina á Raspadori sem þrumaði honum í slána og inn.

Cas Odenthal jafnaði fyrir Sassuolo á 55. mínútu með skalla eftir langt innkast skoska bakvarðarins Josh Doig.

Jafnræðið entist þó ekki lengi því tíu mínútum síðar skoraði Nikola Krstovic sigurmark Atalanta.

Góð byrjun hjá Maurizio Sarri og lærisveinum hans en Juventus og Milan fögnuðu einnig sigrum.

Brasilíski miðvörðurinn Bremer skoraði eina markið í 1-0 sigri Juventus á Frosinone. Hann hafði áður skallað rétt framhjá en stillti miðið í næsta færi og stangaði fyrirgjöf Francisco Conceicao örugglega í netið á 22. mínútu.

Juventus fékk mun hættulegri færi í leiknum en litlu munaði að Frosinone jafnaði á lokasekúndunum. Gabriele Calvani skallaði þá hornspyrnu í samskeytin og út. Heppnin var ekki með gestunum þar.

Milan marði 2-1 sigur á Torino. Hinn 19 ára gamli Alphadjo Cisse kom Milan yfir á 64. mínútu eftir fyrirgjöf Adrien Rabiot og aðeins tveimur mínútum síðar bætti Rabiot sjálfur við öðru marki.

Mark umferðarinnar kom síðan undir lok leiksins. Aukaspyrna Torino var send inn á teiginn þar sem Che Adams náði einhvers konar hálfsnúningi og stýrði boltanum á lofti upp í samskeytin hægra megin.

Tryllt mark hjá skoska landsliðsmanninum en það reyndist aðeins sárabót og Milan fagnaði sigrinum.

Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á varamannabekk Venezia sem tapaði 2-0 fyrir hans gamla félagi Lecce.

Atalanta 2 - 1 Sassuolo
1-0 Giacomo Raspadori ('6 )
1-1 Cas Odenthal ('55 )
2-1 Nikola Krstovic ('65 )

Frosinone 0 - 1 Juventus
0-1 Bremer ('22 )

Venezia 0 - 2 Lecce
0-1 Olaf Gorter ('46 )
0-2 Tiago Gabriel ('80 )

Torino 1 - 2 Milan
0-1 Alphadjo Cisse ('64 )
0-2 Adrien Rabiot ('66 )
1-2 Che Adams ('90 )

Hinn 19 ára gamli Alphadjou Cisse skoraði fyrir Milan

Hinn 19 ára gamli Alphadjou Cisse skoraði fyrir Milan

Canon

Mynd: EPA

Che Adams skoraði geggjað mark gegn Milan

Che Adams skoraði geggjað mark gegn Milan

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Juventus2+56
1Inter1+33
2Inter2+56
2Napoli1+23
3Bologna2+14
3Lecce1+23
4Cagliari1+13
4Milan1+33
5Juventus1+13
5Napoli1+23
6Milan1+13
6Chievo1+13
7Atalanta1+13
7Sampdoria1+13
8Roma2-13
8Udinese101
9Como101
9Torino101
10Bologna000
10Lazio101
11Sassuolo101
11Roma000
12Fiorentina000
12Spal101
13Lazio000
13Genoa2-21
14Frosinone1-10
14Udinese1-10
15Atalanta1-10
15Sassuolo1-10
16Benevento2-20
16Torino1-10
17Parma1-10
17Verona1-20
18Cagliari1-30
18Cremonese38-2534
18Venezia1-20
19Genoa1-20
19Verona38-3621
19Crotone1-30
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-30
20Monza1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.