Fotbolti.net
23.08.26 - 21:16
Sigurjón Árni Torfason

Jói Kalli: Það er varla hægt að gefa víti á svona stuttu færi

Auglýsing
Jói var sáttari þjálfarinn í dag

Jói var sáttari þjálfarinn í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH heimsótti ÍA í 20. umferð Bestu deildar karla á Elkem-vellinum á Akranesi. Leikurinn var nokkuð jafn heilt yfir og hvorugu liðinu tókst að ná almennilegum tökum á honum. Að lokum skildu liðin jöfn, 1-1, og fengu því sitt stigið hvort. Fótbolti.net var að sjálfsögðu mætt á Akranes og náði spjalli við Jóa eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 1 FH
„Þetta var svolítið tveir hálfleikar kannski, mér fannst við vera betri aðilinn kannski í fyrri hálfleiknum en Skagamenn voru ansi grimmir á okkur í seinni hálfleik og við náum ekki alveg að leysa pressuna þeirra. Þeir voru bara komnir inn í leikinn síðan og voru ansi erfiðir að eiga við, þannig að kannski sanngjörn niðurstaða þegar uppi er staðið."

Jói Kalli sneri aftur á heimaslóðir upp á Akranes í dag og fékk hlýjar móttökur. Fyrir leik var hann heiðraður og fékk gjafir frá Skagamönnum.

„Þetta er alltaf bara gaman. Það er svakalega gaman að sjá bara aðstöðuna hérna, náttúrulega frábær aðstaða, frábær völlur, góð stemning, fullt af fólki á vellinum og sól og blíða. Þannig að bara alltaf, alltaf gaman að koma hérna á þennan völl og taka þátt í fótboltaleik."

Skagamenn vildu fá vítaspyrnu þegar skalli frá Erik Tobias Sandberg fór í höndina á Baldri Kára, leikmanni FH.

„Nei, en ég heyrði bara dómarann útskýra það að skallinn er bara af meters færi eða eitthvað. Ég sá það ekki, ég er ekki búinn að sjá þetta, þú gætir alveg farið í hendina á mínum manni en mér finnst Erik Tobias líka ýta bara í bakið á Baldri Kára á undan þannig að það hefði bara átt að vera brot. En ég held að dómari leiksins hafi bara haft hárrétt fyrir sér, það er varla hægt að gefa víti af svona stuttu færi í varnarstöðu þegar það er skallað í hendina."  sagði Jói við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.