23.08.26 - 20:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Linta: Getum ekki grátið út af þessu
Auglýsing

Aleksandar Linta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Linta hugsi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er aldrei ánægður þegar ég tapa. Ég er keppnismaður og ég hata að tapa," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 tap gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.
„Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleiknum. Ég er ekki að segja að Keflavík hafi verið mjög góður, þetta var frekar jafn leikur. Í seinni hálfleik vorum við mjög góðir, ég var mjög ánægður með það. Við sköpuðum nokkur augnablik þar sem við hefðum getað skorað. Það gerðist ekki, þannig er fótboltinn."

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 ÍBV
Eyjamenn hafa núna ekki unnið í síðustu sjö leikjum sínum og staðan er ekki sérlega góð.
„Við getum ekki grátið út af þessu, við þurfum að vinna okkur út úr þessu. Strákarnir eru að æfa af krafti. Hrós á Keflavík fyrir að ná í þrjú stig en ég vil líka óska leikmönnum mínum til hamingju með seinni hálfleikinn, ekki fyrri hálfleikinn."
„Það er eðlilegt að andrúmsloftið sé ekki gott þegar þú tapar leikjum. Það er undir okkur komið að lyfta leikmönnunum upp. Við munum gera það. Staðan var svipuð gegn ÍA í síðasta leik. Það eru góðir karakterar í hópnum, ég kann ótrúlega vel við þessa stráka."
Ertu áhyggjufullur yfir stöðunni?
„Nei. Þetta er fótbolti, þetta er ekki líf eða dauði. Þetta er erfitt og verður líklega barátta til síðasta leiks. Þegar erfið augnablik koma upp, þá gera þau þig sterkari - ekki veikari. Þannig sé ég þetta. Við höldum áfram að leggja á okkur, það er eina leiðin. Þá geturðu bjargað þér. Miðað við hvernig strákarnir æfa og spila, þá eiga þeir heppni skilið," sagði Linta að lokum en ÍBV er í tíunda sæti, einu stigi frá fallsvæðinu.