23.08.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martinelli til Sádi-Arabíu?

Gabriel Martinelli.

Mynd: EPA

Gabriel Martinelli.

Mynd: EPA
Al Hilal frá Sádi-Arabíu hefur hafið viðræður um kaup á Gabriel Martinelli, kantmanni Arsenal, og hefur einnig rætt við fulltrúa leikmannsins um möguleg félagaskipti. Þetta skrifar David Ornstein hjá The Athletic.
Arsenal vill fá í kringum 60 milljónir punda fyrir Martinelli. Ekkert samkomulag hefur náðst en viðræður standa yfir og Brasilíumaðurinn er opinn fyrir því að ganga til liðs við sádi-arabíska félagið.

Galatasaray gerði áður tilboð upp á 45 milljónir evra í Martinelli en leikmaðurinn hafði ekki áhuga á að fara til Tyrklands. Martinelli er ekki að þrýsta á um að yfirgefa Arsenal, þrátt fyrir að félagið sé opið fyrir sölu ef rétta tilboðið berst.
Martinelli var ekki í leikmannahópi Arsenal í sigrunum gegn Manchester City í Samfélagsskildinum og Coventry City í fyrsta leik úrvalsdeildarinnar.
Martinelli, sem er 25 ára, á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal, en félagið hefur möguleika á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar.