23.08.26 - 23:54
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle að ganga frá samkomulagi við Man City

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Nico Gonzalez færist nær Newcastle United, en þetta segir Fabrizio Romano.
Newcastle á í viðræðum við Manchester City um spænska miðjumanninn Nico Gonzalez. Hann var í leikmannahópi City gegn Bournemouth í dag en kom ekkert við sögu.
Enzo Maresca kaus þess í stað að nota Marc Guehi sem varnarsinnaðan miðjumann.
Romano segir Gonzalez færast nær Newcastle. Viðræðum félaganna miðar vel áfram og vonast er til að samkomulag náist á næstu dögum.
Newcastle mun greiða City um 45 milljónir punda fyrir Gonzalez sem mun skrifa undir langtímasamning.
Spánverjinn er 24 ára gamall og gekk í raðir City frá Porto á síðasta ári. Hann varð tvöfaldur bikarmeistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili.