Fotbolti.net
23.08.26 - 22:52
Brynjar Ingi Erluson

Nkunku aftur til Leipzig

Nkunku aftur til Leipzig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Franski sóknarmaðurinn Christopher Nkunku er á leið aftur til þýska félagsins RB Leipzig.
Nkunku var lykilmaður hjá Leipzig á árunum 2019 til 2023 og fór sérstaklega á kostum síðustu tvö tímabil sín hjá félaginu.

Tímabilið 2021-2022 skoraði hann 35 mörk og gaf 20 stoðsendingar í öllum keppnum. Á tímabilinu þar á eftir var hann með 23 mörk og níu stoðsendingar.

Chelsea keypti hann sumarið 2023 en þar náði hann sér aldrei almennilega á strik. Hann var seldur til AC Milan á síðasta ári og skoraði átta mörk á sínu fyrsta tímabili á Ítalíu.

Nú stefnir allt í að Nkunku snúi aftur til Leipzig, en Fabrizio Romano segir þýska félagið hafa náð munnlegu samkomulagi við Milan um lánssamning.

Leipzig greiðir 3,5 milljónir evra fyrir lánið og verður með 30 milljóna evra kaupákvæði í samningnum.

Nkunku er sagður spenntur fyrir því að snúa aftur til félagsins sem gerði hann að stjörnu og verður fróðlegt að sjá hvort honum takist að halda áfram þar sem frá var horfið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.