23.08.26 - 11:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Opnar sig um hatrið eftir brottförina - „Það særir"

Trent Alexander-Arnold.

Mynd: EPA

Trent vann allt sem hægt er að vinna með Liverpool.

Mynd: EPA

Trent Alexander-Arnold.

Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold hefur í fyrsta sinn rætt ítarlega um þá miklu gagnrýni og hótanir sem hann fékk eftir að hann yfirgaf Liverpool og gekk til liðs við Real Madrid í fyrra. Hann segir þó að hann muni alltaf elska uppeldisfélagið sitt og fylgist enn með hverjum einasta leik.
Bakvörðurinn öflugi yfirgaf Liverpool síðasta sumar á frjálsri sölu eftir 20 ár hjá félaginu og var meðal annars baulað á hann þegar hann sneri aftur á Anfield í búningi Real Madrid í Meistaradeildinni í nóvember. Real Madrid tapaði leiknum 1-0 og Alexander-Arnold kom inn á sem varamaður á 80. mínútu.

„Mér finnst ég alveg geta tekið á mig baulin og vonbrigðin frá stuðningsmönnum Liverpool. Ég get skilið þau á minn hátt," segir Alexander-Arnold við Mirror.
„Ég vona samt að einn daginn verði ákveðinn skilningur á ákvörðununum sem ég vildi taka varðandi mitt eigið líf.“
Alexander-Arnold segir að það hafi vissulega sært hann að fá svona viðbrögð en stuðningsmennirnir voru ósáttir við að hann yfirgaf félagið á frjálsri sölu.
„Það særir vegna þess hversu miklu ég hef lagt í félagið í 20 ár og þeirra fórna sem ég færði fyrir félagið á þeim tíma. Auðvitað særir þetta, en ég skil vonbrigðin. Ég skil meira að segja reiðina sem kemur fram í formi bauls.“
Hann segir hins vegar að sumt af því sem hann hafi orðið fyrir á netinu hafi farið langt yfir mörkin.
„Hótanir í gegnum samfélagsmiðla eða með öðrum hætti eru sorglegur hluti af lífinu árið 2026 ef maður er í sviðsljósinu og gerir hluti sem vekja mikla athygli. Ég kýs að halda þessu frá mér vegna þess að þetta finnst mér ekki raunverulegt."
„Ég get sagt við sjálfan mig að þetta endurspegli ekki fótboltafélagið sem ég elska, Liverpool FC, né heimaborgina mína."