Punyed hefur ekki spilað í Lengjudeildinni síðan hann lék með Fjölni


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni með 5-2 sigri á Dalvík/Reyni í 19. umferð 2. deildar. Pablo Punyed leikmaður liðsins ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.
„Bara gaman, þetta var eitt af okkar markmiðum sem við settum okkur, þessi tvö ár. Þróunin sem við vildum gera með Haukum og það tókst núna strax. Þetta er rosa skemmtilegt."
Punyed var þreyttur eftir leikinn.
„Jú reyndar, ég er smá þreyttur. En þegar maður vinnur leikinn og nær markmiðunum sínum þá gleymir maður þreytunni."
Pablo hrósaði strákunum og vegferðinni sem Haukar eru á.
„Það er stórt hrós á Gaua fyrir þessa hugmynd og allir bak við tjaldið sem eru búnir að hjálpa okkur. Enn og aftur stórt hrós á strákana sem eru með okkur í þessu og samþykktu það að fara með okkur í þessa vegferð."
Ætlar Pablo að halda áfram að spila fyrir Hauka í Lengjudeildinni?
„Já, það er markmiðið, en það kemur í ljós. Ég tek bara einn dag í einu, ég er ekki búin að vera í pásu síðan ég kom til baka í júní í fyrra. Við vorum byrjaðir að æfa í nóvember þegar ég var í pásu eftir Bestu Deildina. Ég er að njóta núna."
Pablo hefur ekki spilaði Í Lengjudeildinni síðan hann spilaði með Fjölni árið 2012.
„Fyrsta árið mitt var í Lengjudeildinni með Fjölni, góðar minningar og erfið deild. Alltaf tilhlökkun fyrir svona."
