Fotbolti.net
23.08.26 - 22:27
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Sölvi Geir: Hefur heldur betur sett mark sitt á sögu Víkings

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fyrst og fremst ánægður með sigurinn og ánægður með frammistöðuna,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 2-0 sigur á Val í Víkinni í kvöld. 

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Valur

„Mér fannst þetta flott frammistaða hjá okkur , við stjórnuðum leiknum fannst mér vel í fyrri hálfleik en vantaði upp á meiri ákefð í teignum, vantaði meira upp á að reyna að sækja hraðar á þá þegar við unnum boltann. Mér fannst við eiga inni tvo gíra í fyrri hálfleik og við fórum yfir það í hálfleik og mér fannst við koma sterkir út í seinni hálfleiknum og gerðum þetta bara fagmannlega. Við vorum yfir, fannst mér, á öllum vígstöðum inná vellinum og bara, eins og ég segi, virkilega sáttur með frammistöðuna hjá liðinu,“ hélt hann svo áfram. 

Víkingar eru að spila þennan leik í miðju Evrópuverkefni þar sem þeir eru komnir í ansi djúpa holu eftir 1-3 tap í fyrri leiknum gegn Borac Banja Luka. Næsti leikur Víkings er seinni leikurinn í þessu einvígi en þeir þurfa að spila mjög góðan leik til að fara áfram, eru þeir bjartsýnir fyrir þennan seinni leik?

„Já algjörlega og eins og í fyrri leiknum, þetta var klaufalegt hjá okkur að gefa þessi mörk en við sáum fullt af möguleikum til þess að gera betur en við gerðum hérna heima og við verðum að ná upp góðri spilamennsku og þá eru allir vegir færir.“

Gunnar Vatnhamar kvaddi Víkina í kvöld en útileikurinn gegn Borac verður hans síðasti í Víkingstreyjunni en hann heldur til Danmerkur í næstu viku. Gunnar fékk heiðursskiptingu í lok leiks þar sem honum var fagnað vel og innilega af fólki í stúkunni sem og Víkingsliðinu og teyminu, aðspurður hvort þetta hafi verið kveðjuleikur Gunnars segir Sölvi:

„Já, það eru allar líkur á því að þetta sé síðasti leikurinn í Víkinni og hann á það skilið að fá eina heiðursskiptingu hérna fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir Víkinga. Hann kom hérna frá Færeyjum og hefur heldur betur sett mark sitt á sögu Víkings núna. Ég held að verðlaunin og bikararnir sem að hann hefur unnið frá því að hann kom tali sínu máli og auk þess er þetta frábær einstaklingur, frábær persóna sem að verður mjög erfitt að segja bless við.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.