Fotbolti.net
23.08.26 - 19:52
Brynjar Ingi Erluson

Thelma lagði upp í áttunda sigrinum í röð - Sunneva fékk skell

Thelma Karen lagði upp í sigri Häcken

Thelma Karen lagði upp í sigri Häcken

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir lagði upp mark í 4-1 sigri sænska meistaraliðsins Häcken á AIK í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Hún lagði upp markið sem kom Häcken í 2-1 en fór síðan af velli skömmu eftir að liðið skoraði þriðja markið á 62. mínútu.

Þetta var áttundi sigur Häcken í röð. Liðið er á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 42 stig, fjórum stigum meira en Hammarby sem er í öðru sæti.

Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom inn á sem varamaður hjá FCK sem fékk heldur betur fyrir ferðina gegn Nordsjælland. Lokatölur urðu 9-1 fyrir Nordsjælland.

FCK er nýliði í deildinni og situr á botninum án stiga eftir fjórar umferðir.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir byrjaði hjá Leipzig sem tapaði 2-0 fyrir Bayer Leverkusen í þýsku deildinni.

Katla Tryggvadóttir var í byrjunarliði Fiorentina sem tapaði 2-1 fyrir Sassuolo í Seríu A-bikarnum.

Hildur Antonsdóttir byrjaði þá hjá Newcastle United sem gerði 2-2 jafntefli við Valencia í næstsíðasta æfingaleik liðsins áður en deildarkeppnin hefst. Newcastle leikur í ensku B-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.