Fotbolti.net
23.08.26 - 23:19
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Valdimar Þór: Það eru yfirleitt alltaf gæði í liðinu okkar

Auglýsing
Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Víkings

Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fínn leikur, ánægður með þrjú stig og að halda hreinu,“ sagði Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Víkings, eftir 2-0 sigur gegn Val í Víkinni í kvöld. 

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Valur

Víkingar voru ofan á bróðurpartinn af leiknum og uppskáru verðskulduð þrjú stig. Aðspurður hvernig hann upplifði leikinn sagði hann: 

„Já, mér fannst við stjórna leiknum í fyrri hálfleik en í smá erfiðleikum með að opna þá en það kom allt í seinni hálfleik. Leikurinn opnaðist aðeins meira og við nýttum okkur það.“

Valdimar var ekki í byrjunarliðinu í leik liðsins gegn Borac Banja Luka í vikunni sem að margir settu spurningarmerki við en hvernig metur hann sjálfur þá staðreynd að hafa ekki byrjað þann leik?

„Bara svekkjandi sko.“

Hann kemur inn í byrjunarliðið í dag og setur heldur betur mark sitt á leikinn og sýnir bæði gæði sín og mikilvægi:

„Já, eða þú veist, við erum með mikið af góðum leikmönnum þannig að það eru yfirleitt alltaf gæði í liðinu okkar“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.