Fotbolti.net
23.08.26 - 20:03
Brynjar Ingi Erluson

Vill helst ganga í raðir Man Utd

Vill helst ganga í raðir Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Spænski bakvörðurinn Alejandro Balde er sagður vilja ganga í raðir Manchester United frá Barcelona. Þetta kemur fram í Sport.
Balde vill yfirgefa Barcelona fyrir lok félagaskiptagluggans og er tilbúinn í nýtt ævintýri.

United hefur sýnt honum áhuga í sumar og hefur félagið sett sig í samband við Jorge Mendes, umboðsmann leikmannsins.

United hefur fengið þær upplýsingar að Balde vilji helst ganga í raðir félagsins, þrátt fyrir áhuga annarra liða.

Bakvörðurinn er ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Elche í La Liga í kvöld. Hansi Flick, þjálfari liðsins, segir að hugur hans sé ekki algjörlega hjá félaginu þessa stundina.

„Ég ræddi við Alejandro Balde í dag og sagði honum að mér fyndist hann ekki vera hundrað prósent einbeittur hér. Þess vegna væri best fyrir hann að vera heima og hreinsa hugann. Við ræðum aftur saman á morgun,“ sagði Flick.

Balde er 22 ára gamall og lék 28 leiki með Börsungum þegar þeir urðu Spánarmeistarar á síðasta tímabili.

Barcelona er talið vilja fá meira en 40 milljónir punda fyrir bakvörðinn. Sú upphæð ætti ekki að vera United ofviða, enda þarf félagið að styrkja sig í þeirri stöðu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.