Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. september 2021 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nagelsmann um Rudiger: Þarf að sjá hvað ég á mikið í veskinu
Mynd: EPA
Antonio Rudiger varnarmaður Chelsea hefur verið sterklega orðaður við Bayern Munchen að undanförnu. Samningur hans við Chelsea rennur út eftir tímabilið.

Julian Nagelsmann er mikill aðdáandi af leikmanninum en hann segir að Bayern sé ekki að ræða það að fá Rudiger til félagsins.

„Hann er mjög góður varnarmaður. Ég sagði það í síðustu viku, ég sagði það í síðustu viku að ég kann að meta það þegar menn vinna vinnuna sína, það er þannig með hann,"

aðspurður út í áhuga Bayern á honum sagði hann;„Það er bara orðrómur."

„Ég hef ekki rætt þetta við yfirmann knattspyrnumála, hvort sem þú trúir því eða ekki. Ef ég hefði gert það þá hefði ég ekki sagt þér frá því. Ég veit ekki einu sinni hvað Rudiger á mikið eftir af samningnum. Ég þarf að skoða það. Svo þarf ég að sjá hvað ég á mikinn pening í veskinu mínu svo sjáum við til hvað framtíðin ber í skauti sér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner