Fotbolti.net
23.09.26 - 10:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Alaba búinn að ná samkomulagi á Ítalíu

Úr úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2022.

Úr úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

David Alaba hefur náð samkomulagi við Udinese um að ganga í raðir félagsins og eru félagaskiptin nálægt því að vera frágengin. Frá þessu greinir Fabrizio Romano, ítalski félagaskiptasérfræðingurinn, í dag.

Alaba er án félags eftir að samningur hans við Real Madrid rann út í sumar.
Romano segir að munnlegt samkomulag sé í höfn. Þar sem hann er án félags geta félagaskiptin gengið strax í gegn.

Alaba er 34 ára Austurríksmaður sem lék 16 leiki fyrir Real á síðasta tímabili. Alls skoraði Alaba fimm mörk og lagði upp níu mörk í 132 leikjum með Real í öllum keppnum á tíma sínum í Madrid.

Alaba var orðaður við stærri félög á Ítalíu í sumar; Inter, AC Milan og Juventus, en virðist nú á leið til Udinese.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.