23.09.26 - 22:04
Elvar Geir Magnússon
Burnham vill leyfa bjórdrykkju í stúkunni - „Mismunun“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir að áfengisbann í stúkunni séu úreldar reglur og að fótboltaáhugafólki sé mismunað.
Reglur um að bannað sé að vera með bjór í stúkunni á leikjum á Englandi hafa verið í gildi síðan 1985 en þær ná ekki utan um aðrar íþróttagreinar.
„Þessi löggjöf á rætur að rekja til tímabils þegar umhverfi fótboltans var mjög ólíkt því sem það er í dag. Ég tel svo sannarlega réttlætanlegt að afnema þessa mismunun," segir Burnham sem er sjálfur mikill fótboltaáhugamaður og er ársmiðahafi hjá Everton.

Tom Greatrex, formaður samtaka fótboltastuðningsmanna á Englandi segir það ósanngjarnt að glæpavæða fótboltaáhugafólk fyrir að fá sér bjórglas yfir leik.
„Sérstaklega þegar þú getur setið í sama sæti og fengið þér áfengi þegar þú ert að horfa á ruðningsleik eða á tónleikum með Oasis," segir Greatrex.