23.09.26 - 13:35
Elvar Geir Magnússon
Eriksen riftir í Þýskalandi og heldur heim

Christian Eriksen í leik með Manchester United.

Mynd: EPA

Christian Eriksen og Wolfsburg í Þýskalandi hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi danska landsliðsmannsins, sem hefði annars gilt til sumarsins 2027.
Eriksen hneig niður til jarðar í vináttulandsleik með Danmörku gegn Úkraínu í sumar. Eriksen fékk hjartastopp í leik á EM fyrir fimm árum og var þá græddur í hann bjargráður. Bjargráðurinn veitti honum stuð eftir að hjartslátturinn fór úr skorðum í leiknum gegn Úkraínu.

TENGT EFNI
Eriksen fer heim til Danmerkur í endurhæfingu
„Núna er mikilvægt fyrir mig að vera nálægt fjölskyldu minni í Danmörku. Ég er ánægður með að við gátum fundið lausn saman," segir Eriksen, sem er 34 ára.
Eriksen fór á frjálsri sölu til Wolfsburg fyrir ári síðan og lék alls 34 leiki fyrir félagið. Á ferli sínum hefur hann leikið fyrir Ajax, Tottenham, Inter, Brentford og Manchester United.