Fotbolti.net
23.09.26 - 23:07
Brynjar Ingi Erluson

Gera lítið úr meiðslum Sesko - „Getur þú ekki bara sett legghlífarnar á þig?“

Benjamin Sesko

Benjamin Sesko

Canon

Mynd: EPA

Fyrrum Man Utd-mennirnir Paul Scholes og Nicky Butt hafa gagnrýnt slóvenska framherjann Benjamin Sesko fyrir að hafa ekki verið með gegn Fulham um helgina.
Sesko var ekki með vegna meiðsla á sköflungi og ræddu þeir Paul Scholes og Nicky Butt meiðslin í kjölfarið í þættinum The Good, The Bad, and The Football.

Þeir töluðu um að varnarlínan væri vandamál hjá Manchester United, en að sóknarleikurinn væri enn stærra áhyggjuefni þar sem liðið væri aðeins með einn hreinræktaðan framherja.

„Öftustu fjórir hafa verið svakalegt vandamál, en stærsta vandamálið er nían. Hvernig getur United verið með aðeins einn framherja sem er svo meiddur, og það á sköflungi?“

„Hvernig meiðistu á sköflungi? Er það ekki bara fótbrot? Geturðu ekki bara sett legghlífarnar á þig?“
sagði Scholes.

Butt var sammála fyrrum liðsfélaga sínum og sagðist ekki skilja þetta almennilega.

„Annaðhvort brýturðu sköflunginn eða spilar. Settu legghlífarnar á þig. Ég skil þetta ekki alveg, en án þess að vita nákvæmlega hvernig meiðslin eru er erfitt að ræða þetta frekar,“ sagði Butt.

Sesko dró sig síðar úr slóvenska landsliðshópnum fyrir Þjóðadeildina og virðast meiðslin því alvarlegri en Butt og Scholes gerðu ráð fyrir.

Jaka Bijol, leikmaður Leeds og samherji Sesko í slóvenska landsliðinu, hefur komið framherjanum til varnar.

„Ég vona og trúi því að Beni kunni að halda sér frá svona pressu. Þegar hlutirnir ganga ekki vel á vellinum og þú ferð kannski sjálfur að efast getur það eyðilagt sjálfstraustið að lesa svona hluti.“

„Hann ætti ekki að hugsa of mikið um þetta því við vitum öll hversu mikla hæfileika hann hefur. Beni veit sjálfur hvers konar fótboltamaður hann er og sýnir það alltaf með þeim ótrúlegu hlutum sem hann gerir inni á vellinum,“
sagði Bijol.
Paul Scholes

Paul Scholes

Canon

Mynd: EPA

Jaka Bijol kom Sesko til varnar

Jaka Bijol kom Sesko til varnar

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.