23.09.26 - 17:36
Brynjar Ingi Erluson
Góður sigur hjá Diljá - Fyrsti keppnisleikur Selmu síðan í maí

Selma Sól spilaði síðustu mínúturnar hjá Rosenborg, en þetta var hennar fyrsti keppnisleikur með aðalliðinu síðan í maí

Mynd: Rosenborg

Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í Brann eru skrefi nær 16-liða úrslitum Evrópubikarsins eftir 2-0 útisigur á HJK frá Finnlandi í fyrri leik liðanna í annarri umferð forkeppninnar í dag.
Það má segja að Brann sé komið með annan fótinn áfram eftir mörk frá Monicu Isaksen og Brennu Lovera, sem lék með ÍBV og Selfossi hér heima. Isaksen lagði upp mark Lovera.
Diljá lék allan leikinn með Brann sem fær HJK í heimsókn eftir viku.
Selma Sól Magnúsdóttir lék þá sinn fyrsta keppnisleik með Rosenborg síðan í maí þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Liberec frá Tékklandi.
Hún kom inn af bekknum þegar níu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en hefur verið reglulega í leikmannahóp Rosenborg í síðustu leikjum.