Fotbolti.net
23.09.26 - 19:05
Brynjar Ingi Erluson

Ída Marín lagði upp í góðum sigri - Misjafnt gengi hjá systrunum

Ída Marín lagði upp fyrra mark Hammarby

Ída Marín lagði upp fyrra mark Hammarby

Canon

Mynd: Hammarby

Kvennaboltinn
Ída Marín Hermannsdóttir heldur áfram að gera það gott með sænska liðinu Hammarby, en hún lagði upp fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Rangers í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópubikarsins í kvöld.
Aðeins nokkrar vikur eru síðan Ída kom til Hammarby frá FH, en hún hefur ekki þurft langan aðlögunartíma og er strax komin í stórt hlutverk hjá liðinu.

Hún skoraði þrennu í sænska bikarnum og fylgdi því eftir með marki í fyrsta deildarleiknum. Þá lagði hún upp mark í sínum fyrsta Evrópuleik með Hammarby.

Ída lagði upp fyrir Elin Sorum á 29. mínútu og lék í 70 mínútur, en Guðrún Arnardóttir stýrði varnarlínu Hammarby.

Liðið bætti við öðru marki undir lokin og fer því með góða stöðu til Skotlands.

Gengið var misjafnt hjá systrunum Hlín og Örnu Eiríksdætrum. Hlín byrjaði í 2-0 útisigri á St. Polten á meðan Arna var í vörn Vålerenga sem tapaði 4-1 fyrir Feyenoord í Hollandi. Fanney Inga Birkisdóttir var í marki Vålerenga.

Alexandra Jóhannsdóttir skoraði fyrsta mark Kristianstad í 8-0 stórsigri á Värnamo í sænska bikarnum. Sigurinn tryggði liðinu sæti í riðlakeppni bikarsins sem fer fram á næsta ári.

Ásamt Alexöndru voru þær Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir einnig í byrjunarliðinu. Nik Chamberlain er þjálfari Kristianstad, en hann stýrði áður Breiðabliki og Þrótti hér heima áður en hann tók við sænska liðinu á síðasta ári.
Alexandra skoraði fyrsta mark Kristianstad í 8-0 stórsigri

Alexandra skoraði fyrsta mark Kristianstad í 8-0 stórsigri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.