23.09.26 - 23:53
Brynjar Ingi Erluson
Ítölsku bræðurnir gætu komið sér í fámennan hóp

Pio gæti spilað með bróður sínum

Mynd: EPA

Sebastiano er hjá Sassuolo

Mynd: EPA

Pio gæti spilað með bróður sínum

Mynd: EPA
Ítölsku bræðurnir Pio og Sebastiano Esposito gætu komið sér í mjög fámennan hóp á næstu dögum, en báðir eru í landsliðshópi Ítalíu fyrir leiki liðsins í Þjóðadeildinni.
Báðir eru uppaldir hjá Brescia og síðar Inter á Ítalíu. Pio spilar þar enn en Sebastiano leikur með Sassuolo á láni frá Cagliari.
Þeir hafa báðir verið að gera góða hluti og voru á dögunum valdir af Roberto Mancini í ítalska landsliðshópinn.
Þar gætu þeir orðið aðeins fjórða bræðraparið til að spila saman fyrir ítalska landsliðið. Enn athyglisverðara er að þeir eiga annan bróður, Salvatore, sem lék sinn eina A-landsleik til þessa gegn Englandi árið 2022, en hann spilar með Sampdoria í B-deildinni í dag og því ekki í myndinni hjá Mancini.
Síðast gerðist það árið 2000 þegar Filippo og Simone Inzaghi léku saman í ellefu mínútur gegn Englandi. Þar áður höfðu Giuseppe og Felice Milano spilað saman árið 1912 og Aldo og Luigi Cevenini þremur árum síðar.
Ítalía mætir Belgíu á laugardag og á síðan tvo leiki gegn Tyrklandi og einn gegn Frakklandi í A-deildinni.

For the FIRST TIME since the days of Pippo & Simone Inzaghi, there will be a NEW set of brothers that coincide dawning the Azzurri kit at the men’s level
— AzzurriXtra???????? (@XtraAzzurri) September 18, 2026
• Francesco Pio Esposito (21)
• Sebastiano Esposito (24)#OptaAzzurriXtra???? pic.twitter.com/jn052k5fCY

Sebastiano er hjá Sassuolo

Mynd: EPA