23.09.26 - 22:10
Brynjar Ingi Erluson
Juventus búið að finna markvörð í stað Grabara

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska stórliðið Juventus hefur náð samkomulagi við brasilíska markvörðinn Neto sem snýr því aftur til félagsins níu árum eftir að hann yfirgaf það.
Neto er 37 ára og var síðast hjá Botafogo í heimalandinu, en rifti samningi sínum við félagið í sumar.
Hann lék með Juventus frá 2015 til 2017 sem varamarkvörður fyrir Gianluigi Buffon áður en hann fór til Barcelona og síðar Bournemouth. Tímabilið 2024-25 var hann á láni hjá Arsenal en hélt aftur til Brasilíu að því loknu.
Á dögunum sleit pólski markvörðurinn Kamil Grabara krossband á æfingu hjá Juventus, aðeins nokkrum vikum eftir komuna frá Wolfsburg, og setti það félagið í vandræði.
Juventus þurfti því að fara aftur á markaðinn til að finna Guglielmo Vicario samkeppni og hefur nú náð samkomulagi við Neto.
Samningurinn verður að öllum líkindum aðeins til janúar, með möguleika á framlengingu út tímabilið ef Juventus er ánægt með hann sem varakost þar til Grabara snýr aftur úr meiðslunum.

???????? Juventus agree deal to sign Neto as new goalkeeper, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 23, 2026
Short term contract agreed for the Brazilian GK who returns to Juventus after Kamil Grabara’s knee injury. ???????? pic.twitter.com/AfHqvnjdX3