Fotbolti.net
23.09.26 - 20:48
Brynjar Ingi Erluson

Kallar Van Dijk barnalegan - „Þarf fjóra í kringum sig til að spila eins og Beckenbauer“

Virgil van Dijk

Virgil van Dijk

Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool og hollenska landsliðsins, var fremur þurr í svörum á blaðamannafundi landsliðsins í dag, en það var góð ástæða fyrir því.
Valentijn Driessen hjá De Telegraaf spurði Van Dijk nokkurra spurninga á blaðamannafundinum, en fyrirliðinn svaraði stutt og virtist hafa lítinn áhuga á að ræða við hann.

Það var saga þar að baki. Nokkrum mánuðum áður hafði Driessen sagt að Van Dijk hefði eyðilagt hollenska fótboltann og jafnvel haldið því fram að hann hefði átt hugmyndina að því að spila með fimm manna vörn á heimsmeistaramótinu.

Þeir mættust svo aftur á blaðamannafundinum í dag þar sem aðeins sauð upp úr. Van Dijk lét Driessen vita að hann teldi hann skrifa vitleysu á meðan blaðamaðurinn hélt áfram að fiska eftir svörum.

Johan Derksen, einn þekktasti sparkspekingur Hollands, segir Van Dijk hafa komið illa út úr samskiptunum og hagað sér eins og hann væri hafinn yfir gagnrýni. Hollenskir miðlar hafa þó lengi verið harðir við landsliðið og þetta er langt frá því í fyrsta sinn sem fyrirliðinn fær á sig gagnrýni.

„Hann hefur alltaf haft byr í seglin og núna er búið að styggja hann algjörlega því einhver dirfist að gagnrýna hann. Hann er einfaldlega ekki vanur því.“

„En þú ert bara alvöru stjarna ef þú ræður líka við svona lagað. Mér finnst svolítið barnalegt að hinn mikli Van Dijk skuli missa svefn yfir nokkrum setningum sem honum líkar ekki við.“

„Hann er mjög brothættur og þarf fjóra leikmenn í kringum sig svo hann geti spilað eins og Beckenbauer.“

„Ég sagði eitthvað fyrir fjórum árum og þá ákvað Van Dijk að hollenska landsliðið myndi ekki tala aftur við VI (Voetbal International). Það var eiginlega bara fínt því enginn fótboltamaður hefur hvort sem er neitt merkilegt að segja eftir leiki. Þetta er bara innantómt hjal og það augljósa endurtekið,“
sagði Derksen.

Hægt er að sjá samskipti Van Dijk og Driessen hér fyrir neðan.


Virgil Van Dijk's exchange with Valentijn Driessen in the Netherlands press conference
by
u/IndiBear in
LiverpoolFC
Kallar Van Dijk barnalegan - „Þarf fjóra í kringum sig til að spila eins og Beckenbauer“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.