23.09.26 - 22:34
Brynjar Ingi Erluson
Klopp: Það hefur enga þýðingu fyrir mig

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jürgen Klopp, þjálfari þýska landsliðsins, býst við mikilli spennu þegar Þjóðverjar mæta Hollendingum í Þjóðadeildinni á morgun.
Mikill rígur hefur lengi verið á milli þýska og hollenska landsliðsins og má rekja hann langt aftur, meðal annars til úrslitaleiks Vestur-Þýskalands og Hollands á HM 1974.
Klopp, sem stýrir Þýskalandi í fyrsta sinn, var spurður út í þennan ríg á fréttamannafundi fyrir leikinn.
„Það hefur enga þýðingu fyrir mig því ég hef aldrei fundið sérstaklega fyrir þessum ríg. Það væri betra að spyrja Rudi Völler út í þetta, einhvern sem hefur upplifað þetta af eigin raun.“
„Andrúmsloftið verður samt spennuþrungið og þetta verður erfiður leikur fyrir okkar menn því andstæðingurinn er mjög sterkur, með mikla hæfileika og frábæra fótboltamenn.“
„Það er í raun ótrúlegt hvað það eru margir gæðaleikmenn í hollenska landsliðinu og ef við ætlum að eiga einhvern möguleika verðum við að mæta í þetta eins og alvöru grannaslag.“
„Þetta er byrjunin á einhverju hjá okkur og við viljum byrja vel. Allt annað í kringum leikinn skiptir töluvert minna máli,“ sagði Klopp.