23.09.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson
Myndband af Gibbs-White og konu hans vekur mikla athygli - „Það er svo margt að þessu“

Gibbs-White mun alla vega ekki hlusta á þessa gagnrýni

Mynd: EPA

Gibbs-White fær stuðning frá Agbonlahor

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Morgan Gibbs-White var á dögunum kallaður inn í enska landsliðshópinn eftir að Cole Palmer dró sig úr hópnum, en hann var þá í fríi í Dúbaí með eiginkonu sinni og þurfti því að kveðja hana með stuttum fyrirvara. Kveðjustundin fór fram á TikTok-rás hennar og vakti myndbandið talsverða athygli.
Gibbs-White er einn af lykilmönnum Nottingham Forest og sterk viðbót í enska landsliðið.
Það verður þó eflaust eitthvað hlegið í klefanum eftir myndband sem konan hans birti á samfélagsmiðlum.
Þar kveður hún hann með því að mæma atriði úr myndinni High School Musical, en myndbandið hefur farið eins og eldur um sinu og fengið talsverða gagnrýni.
Fyrrum fótboltamaðurinn Charlie Austin sagði á Sky Sports að sér fyndist þetta heldur súrt.
„Það er svo margt að þessu. Ég veit að fólk vill meiri tengingu milli leikmanna og stuðningsmanna, en ég vona að þetta verði spilað alls staðar á St. George's Park (æfingasvæði landsliðsins) og inni í klefa. Svona er leikurinn, en þetta er mjög illa séð,“ sagði hann.
Gabriel Agbonlahor, fyrrum leikmaður Aston Villa, var hins vegar á öðru máli og sagði ekkert að þessu. Gibbs-White og konan hans væru einfaldlega að hafa gaman saman og fólk mætti finna sér eitthvað annað til að röfla yfir.
„Konan mín myndi elska það ef ég gerði TikTok með henni, en ég myndi ekki gera það. Ég er svolítil risaeðla, en leyfið honum bara að gera þetta. Allt þetta fólk sem er að röfla yfir því að leikurinn sé farinn og eitthvað slíkt þarf bara að fá sér líf. Þetta er önnur kynslóð og þau eru á þrítugsaldri að hafa smá gaman saman,“ sagði Agbonlahor.
Á X hafa nokkrar grínsíður meira að segja sagt að það ætti að reka Gibbs-White úr landsliðinu og að fótboltinn sé farinn til fjandans, en áhugasamir geta séð myndbandið hér fyrir neðan.

???? BREAKING: Morgan Gibbs-White should be banned from the England team for the foreseeable future after he filmed this on the way to the camp with his Mrs. ????????????????????????????????
— Football Tweet ?? (@Footballtweet) September 22, 2026
The game has never been more gone. pic.twitter.com/UEFkoLpUkj

Gibbs-White fær stuðning frá Agbonlahor

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson