Fotbolti.net
23.09.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Porro frá næsta mánuðinn

Porro frá næsta mánuðinn
Canon

Mynd: EPA

Pedro Porro, leikmaður Tottenham og spænska landsliðsins, verður frá næsta mánuðinn vegna meiðsla á læri.

Porro er 27 ára hægri bakvörður sem meiddist gegn Aston Villa um liðna helgi og var hann sýnilega pirraður á meiðslunum þegar hann fór af velli snemma leiks.
Porro var að snúa aftur eftir önnur smávægileg meiðsli og hafði misst af tveimur leikjum fyrir endurkomuna í síðasta leik.

Hann byrjaði sex af átta leikjum Spánar sem varð heimsmeistari í sumar. Hann skoraði gegn Austurríki í 32-liða úrslitunum og Frakklandi í undanúrslitunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.