23.09.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reijnders: Held að allir myndu segja já við þessu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tijjani Reijnders tjáði sig í vikunni um hvers vegna hann ákvað að fara frá Manchester City í sumar en hann var keyptur til Al Qadsiah í Sádi-Arabíu.
Reijnders var keyptur á 51 milljón punda einungis ári eftir að hafa komið til City frá AC Milan. Reijnders segir að hann vildi spila aðeins aftar á miðsvæðinu.

„Mér fannst undirbúningstímabilið þróast þannig að þetta yrði eins hjá City og ég hugsaði hvort ég vildi annað svoleiðis tímabil," segir Reijnders sem er núna með hollenska landsliðinu.
„Heiðarlega svarið er nei. Ég vildi leita annað og svo heyrði ég frá félagi sem leyfði mér að vera í því hlutverki."
„Ég held að mjög margir hugsi að tími þinn sem toppleikmaður sé búinn þegar þú tekur skref eins og þetta. Mér fannst það fyrst líka."
„Brendan Rodgers (stjóri Al Qadsiah) sagði að ég gæti átt 3-4 mjög ánægjuleg ár hér og svo gæti ég farið aftur til Evrópu. Það eru til dæmi um það. Það er markmið mitt líka."
„Með öll stóru nöfnin þá er ég á því að deildin í Sádi sé sterkari en deildin í Hollandi. Ef fólk ætlar að dæma fótboltann þá ætti það fyrst að horfa á deildina."
„Þú getur spilað þig sem siðapostula en ég held að allir myndu segja já við þessu (fjárhagslega pakkanum). Ég vil ekki þurfa að vinna eftir ferilinn. Ég hefði ekki þurft að gera það eftir tímann hjá City, en nú ættu næstu kynslóðir í fjölskyldunni að vera í góðum málum líka."
„Ef þetta val gerir barnabörnum mínum tækifæri til að lifa þægilega líka, af hverju ætti ég þá ekki að gera þetta?" sagði hollenski landsliðsmaðurinn að lokum.