Fotbolti.net
23.09.26 - 13:24
Elvar Geir Magnússon

Rekinn fyrir að segja við kvendómara að fótbolti sé karlmannsíþrótt

Federico Higuain.

Federico Higuain.

Canon

Mynd: Columbus Crew

MLS-félagið Columbus Crew hefur rekið þjálfara varaliðsins eftir að hann neitaði að sleppa haldi á hendi kvenkyns dómara og sagt við hana: 'Ekki gleyma því að þetta er karlmannsíþrótt'.

Umræddur þjálfari er Federico Higuain, bróðir Gonzalo Higuain, fyrrum sóknarmanns Real Madrid.

Higuain fékk rautt spjald eftir atvikið og var dæmdur í tveggja leikja bann. Columbus Crew sendi svo frá sér yfirlýsingu þar sem félagið sagðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að best væri að segja honum upp störfum.
Samtök atvinnudómara gagnrýndu tveggja leikja bann Higuain og sögðu það „langt frá því að vera fullnægjandi“.

„Konur gera þessa íþrótt betri á öllum stigum. Þær ættu ekki að þurfa að þola hótanir eða niðurlægjandi ummæli. Kvenkyns dómarar okkar hafa sýnt fram á framúrskarandi hæfni á alþjóðavettvangi. Þær eiga skilið sömu virðingu, reisn og öruggt vinnuumhverfi eins og allir aðrir dómarar," sagði í yfirlýsingu frá samtökunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.