Fotbolti.net
23.09.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Robertson: Það var alltaf Tottenham

Robertson: Það var alltaf Tottenham
Canon

Mynd: EPA

„Ég var alltaf að fara í Tottenham, svo lengi sem liðið myndi halda sér uppi," sagði Andy Robertson, leikmaður Tottenham, í The Overlap þegar hann ræddi um félagaskipti sín frá Liverpool til Tottenham í sumar.

Skoski vinstri bakvörðurinn, sem er 32 ára, var sömuleiðis orðaður við Juventus á Ítalíu. Hann fékk önnur tilboð en ákvað að fara til Tottenham.
„Á þessum tímapunkti var ég ekki alveg tilbúinn að fara í Championship með Tottenham, svo ég fór að fylgjast vel með liðinu. Ég horfði á liðið, sérstaklega undir stjórn De Zerbi, og hafði fulla trú á þessu."

„Tottenham var fyrst til að sýna áhuga og þeir vildu virkilega fá mig og ég var ánægður með hversu mikið þeir vildu fá mig,"
segir Robertson.

Hjá Liverpool vann Robertson ensku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeildina 2019 - eftir úrslitaleik gegn Tottenham í Madríd. Hann hefur byrjað fjóra af fyrstu fimm leikjum Tottenham í úrvalsdeildinni en liðið er einungis með tvö stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.