23.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Söfnuðu einni milljón fyrir Gleðistjörnuna

Mynd: Víkingur

Mynd: Víkingur
Víkingur R. og Petit héldu sérstakt Petit hamingjumót í ágúst þar sem 500 krónur af mótsgjaldi hvers keppanda runnu til góðgerðarmála.
Um tvö þúsund börn tóku þátt í mjög vel heppnuðu móti sem var haldið í blíðskaparveðri og voru keppendur leystir út með glæsilegum varningi og verðlaunapeningi.
Í heildina safnaðist ein milljón króna sem mótshaldarar létu renna til Gleðistjörnunnar, góðgerðarfélags sem stofnað var til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur.
Hlutverk Gleðistjörnunnar er að gleðja systkini langveikra barna með gleðigjöfum og viðburðum til að skapa ánægjulegar stundir við krefjandi aðstæður.
„Víkingur og Petit þakka öllum sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera mótið að einstaklega vel heppnuðum viðburði."