23.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steinninn hans Salah orðinn túristastopp

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tyrkneskt fyrirtæki er að reyna að gera stein að vinsælu túristastoppi eftir að Mohamed Salah birti myndir af sér á Instagram.

TENGT EFNI
Salah hetjan í mögnuðum stórsigri gegn Galatasaray
Fyrirtækið fann steininn, setti upp skilti til að merkja hann og tók upp myndband til að leiðbeina Tyrkjum á réttan stað.
Fyrir um viku síðan birti Salah myndir af sér í tyrkneskri náttúru og hefur ferðalagið farið vel í egypska kónginn, sem gjörsamlega flengdi tyrkneska risaveldið Galatasaray með þremur mörkum og stoðsendingu um nýliðna helgi.
Tyrkir eru þegar byrjaðir að taka myndir af sér á steinunum sem Salah sat á og gæti ferðamannaflæðið á svæðið aukist enn frekar vegna áhrifa samfélagsmiðla.

????????Mohamed Salah’?n gitti?i yaylaya nas?l ç?k?l?yor. Sizin için anlatt?k tabelay? yerle?tirdik. pic.twitter.com/03DbavBMje
— XTG Spor (@xtgspor) September 20, 2026