Fotbolti.net
23.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þrír sæmdir heiðursviðurkenningum í Húnaþingi

Þrír sæmdir heiðursviðurkenningum í Húnaþingi
Canon

Mynd: KSÍ

Fyrir leik Kormáks/Hvatar gegn Haukum í undanúrslitum Gatoradebikars Fótbolta.net vorur þrír mikilvægir hlekkir í starfinu í Húnaþingi sæmdir viðurkenningum frá KSÍ.
Björn Vignir Björnsson fær gullmerki KSÍ eftir að hafa verið stjórnarmeðlimur Kormáks/Hvatar undanfarna áratugi, en þar áður var hann burðarás í starfi UMF Hvatar í álíka langan tíma - ef ekki lengur.

„Björn Vignir veitir stjórnarmönnum og nærumhverfi stöðugt aðhald allan ársins hring í starfsumhverfi sem hefur sínar áskoranir í iðkendafjölda og aðstöðu - vakir þannig yfir knattspyrnu í Húnaþingi nótt og dag," segir meðal annars á vef KSÍ.

Jón Örn Stefánsson og Sigurður Bjarni Aadnegard hljóta silfurmerki KSÍ. Jón Örn hefur verið formaður meistaraflokksráðs Kormáks/Hvatar síðustu ár en var áður fyrr virkur stjórnarmaður í UMF Hvöt, á meðan Sigurður Bjarni er mikilvægur burðarás í starfinu hjá Kormáki/Hvöt þrátt fyrir ungan aldur.

„Jón Örn er vakinn og sofinn yfir framgangi knattspyrnu í Húnaþingi og hefur mjög horft til sameiginlegra hagsmuna liðanna á Norðurlandi vestra í virku samtali við nágrannalið og stjórnsýslu í sveitarfélögunum," segir á vef KSÍ.

„Án starfa Sigurðar Bjarna má ganga út frá því að lið Kormáks Hvatar væri hætt störfum. Áhrif hans hafa verið gríðarleg til að tryggja að ungir leikmenn hafi enn meistaraflokkslið til að spila með í heimabyggð."

Heimild: KSÍ

Þrír sæmdir heiðursviðurkenningum í Húnaþingi
Canon

Mynd: KSÍ

Þrír sæmdir heiðursviðurkenningum í Húnaþingi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.