Fotbolti.net
23.09.26 - 18:16
Brynjar Ingi Erluson

Tvö stór áföll á skömmum tíma hjá nýliðunum

Aubameyang verður frá í tvo mánuði

Aubameyang verður frá í tvo mánuði

Canon

Mynd: EPA

Spænsku nýliðarnir í Deportivo La Coruna verða án framherjans Pierre-Emerick Aubameyang næstu tvo mánuði vegna hnémeiðsla, en félagið hefur staðfest tíðindin.
Hinn 37 ára Aubameyang hefur verið í frábæru formi síðan hann kom til félagsins í sumar og skorað fimm mörk og lagt upp tvö til viðbótar í La Liga.

Á dögunum fann hann fyrir eymslum í hné og var í kjölfarið sendur í myndatöku. Þar kom í ljós að hann hefur rifið liðþófa og þarf að gangast undir aðgerð.

Hann ætti þó að ná sér að fullu á um tveimur mánuðum, en þetta er engu að síður mikið högg fyrir Deportivo að missa sinn besta mann í svo langan tíma.

Þetta er önnur stjarna liðsins sem meiðist á skömmum tíma. Marc Casado, sem kom frá Barcelona, verður frá næstu þrjá mánuði eftir að hafa brotið viðbein.

Deportivo er í 7. sæti með tíu stig eftir sjö umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.