Fotbolti.net
23.09.26 - 14:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

U17: Lengjudeildarmarkaskorarar og mjög slysalegt sjálfsmark í sigri á Gíbraltar

Byrjunarliðið í dag.

Byrjunarliðið í dag.

Canon

Mynd: KSÍ

Ísland 4 - 0 Gríbraltar
1-0 Mikael Máni Þorfinnsson ('25)
2-0 Bjarki Örn Brynjarsson ('32)
3-0 Magnús Daði Ottesen ('38)
4-0 Aaron Cordon, sjálfsmark ('89)
U17 vann í dag sigur á Gíbraltar í fyrsta leik sínum í fyrri umferð undankeppni EM 2027. Ísland leiddi með þremur mörkum í leikhléi og voru þau skoruð af Mikael Mána, Bjarka Erni og Magnúsi Daða sem léku með Grindavík, HK og Fylki í Lengjudeildinni í sumar.

Fyrsta markið kom eftir að Bjarki Örn lagði boltann út fyrir vítateig Gíbraltar og Mikael Máni hamraði boltann í stöngina og inn. Magnús Daði lagði svo upp mark fyrir Bjarka Örn sjö mínútum seinna en smá heppnisstimpill var á þeirri afgreiðslu.

KA maðurinn Sigurður Nói Jóhannsson gerði svo mjög vel úti vinstra megin á 38. mínútu og átti fasta sendingu út á Magnús Daða sem skoraði með skoti af stuttu færi.

Seinni hálfleikurinn var heldur rólegri, en eina mark hans var sjálfmark Gíbraltar og 4-0 sigur Íslands því staðreynd. Sjálfsmarkið var afskaplega slysalegt, sending út frá markmanni og á Aaron Cordon sem ætlaði að senda boltann til baka á markvörðinn en setti hann í boga yfir hann og markvörður Gíbraltar ga ekki komið í veg fyrir mark.

Á sama tíma vann Bosnía og Hersegóvína 2-0 sigur á Grikklandi í sama riðli.

Næsti leikur Íslands er á laugardag þegar íslenska liðið mætir Bosníu og Hersegóvínu.

U17: Lengjudeildarmarkaskorarar og mjög slysalegt sjálfsmark í sigri á Gíbraltar
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.