23.09.26 - 07:00
Elvar Geir Magnússon
Vaxandi áhugi frá Liverpool og Man Utd á Mitchell

Enski vinstri bakvörðurinn Tyrick Mitchell.

Mynd: EPA

Garnacho í La Liga?

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistararnir hafa áhuga á Gibbs-White.

Mynd: EPA

Martin O'Neill fær stuðningsyfirlýsingu.

Liverpool og Manchester United horfa löngunaraugum til leikmanns Crystal Palace, Þýskalandsmeistararnir hafa áhuga á lykilmanni Nottingham Forest og O'Neill fær stuðningsyfirlýsingu í Glasgow. Þetta og fleira í Powerade-pakkanum.
Enski vinstri bakvörðurinn Tyrick Mitchell (27) hjá Crystal Palace vekur aukinn áhuga frá Liverpool og Manchester United. (Teamtalk)
Allt útlit er fyrir að Julian Ward taki aftur við sem yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool eftir að Richard Hughes fór til Sádi-Arabíu. (The Athletic)
Alejandro Garnacho (22) hjá Aston Villa er undir smásjá spænskra félaga en hann hefur lítið fengið að spila síðan hann kom á Villa Park á láni frá Chelsea í sumar. (Mail)
Bayern München hefur áhuga á enska miðjumanninum Morgan Gibbs-White (26) hjá Nottingham Forest. (Talksport)
Arsenal mun nýta landsleikjagluggann til að ganga frá nýjum langtímasamningu fyrir enska miðjumanninn Declan Rice (27). (Football Transfers)
Arsenal hefur möguleika á að framlengja núverandi samning Rice um eitt ár en félagið vill frekar gefa honum nýjan samning í samræmi við stefnu félagsins varðandi lykilmenn. (Guardian)
Liverpool telur sig geta náð því besta út úr þýska sóknarmiðjumanninum Florian Wirtz (23) en fulltrúar leikmannsins hafa verið í viðræðum við Bayern München. (Teamtalk)
Chelsea fylgist með gambíska miðjumanninum Adama Jeng (15) en Bayern München, Benfica, Sporting og Paris FC hafa einnig áhuga á þessum unga leikmanni sem spilar fyrir Samger FC í heimalandi sínu. (Mail)
AC Milan og Roma hafa áhuga á að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) lánaðan frá Real Madrid ef Florentino Perez, forseti spænska félagsins, er reiðubúinn að leyfa honum að fara. (Calciomercato)
Barcelona hefur fylgst með Brasilíumanninum Arthur Dias (19) hjá Athletico Paranaense en Tottenham hefur áður sýnt miðverðinum mikinn áhuga. (ESPN)
Arsenal var svo nálægt því að fá brasilíska sóknarmanninn Vinicius Jr (26) frá Real Madrid í sumar að liðsfélagar hans töldu það fullvíst að hann myndi fara til Englandsmeistarana. (Cadena SER)
Celtic í Glasgow sýnir Martin O'Neill (74) stuðning þrátt fyrir erfiða viku þar sem liðið tapaði tvisvar gegn Rangers auk þess að tapa Evrópuleik gegn Ferencvaros. Michael Nicholson framkvæmdastjóri skoska stórliðsins segir stjórann reynda vera með fullan stuðning. (BBC)