Fotbolti.net
23.11.26 - 13:13
Elvar Geir Magnússon

Iordanescu verður sjötti stjóri Watford á átján mánuðum

Edward Iordanescu.

Edward Iordanescu.

Canon

Mynd: EPA

Watford ætlar að ráða Edward Iordanescu sem nýjan stjóra. Rúmeninn verður sjötti stjóri Watford á innan við átján mánuðum.
Alessio Dionisi var rekinn eftir 4-0 tapið gegn Sheffield United á laugardaginn. Watford er í 21. sæti af 24 liðum í Championship-deildinni.

Iordanescu kemur til Bretlands á þriðjudaginn til að undirrita samning og ætlar að taka með sér þrjá starfsmenn. Hann vonast til að vera með stjórnartaumana í leiknum gegn Blackburn Rovers á miðvikudaginn.

Iordanescu stýrði Rúmeníu á EM 2024 þar sem liðið lenti í efsta sæti riðilsins, á undan Belgíu. Liðið tapaði 3-0 gegn Hollandi í 16-liða úrslitum.

Watford er að ráða sinn 25. stjóra síðan Pozzo fjölskyldan eignaðist félagið árið 2012.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.