23.11.26 - 13:21
Elvar Geir Magnússon
Linta stýrir ÍBV í Lengjudeildinni - Siggi Raggi hafnaði Gróttu

Aleksandar Linta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ríkharður Daðason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta er á leið aftur til Vestmannaeyja og mun stýra ÍBV áfram. Liðið féll úr Bestu deildinni í sumar og orðrómur var um að þjálfaraskipti gætu átt sér stað í Eyjum.
Magnús Sigurðsson, formaður fótboltadeildar ÍBV, staðfesti hinsvegar í samtali við Vísi að Linta yrði áfram.
Hann mun fá nýjan aðstoðarmann en Óskar Elías Zoega Óskarsson verður ekki áfram í því starfi.

TENGT EFNI
Óskar ekki áfram hjá ÍBV (Staðfest) - „Tókst því miður ekki að fylgja því eftir"
Tvö félög í Lengjudeildinni eru þjálfaralaus. Grótta hefur verið að ræða við menn en meðal þeirra sem félagið setti sig í samband við er Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gaf Siggi Raggi félaginu afsvar.
Ríkharður Daðason hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá Gróttu og þykir líklegur.
Þá er Völsungur á Húsavík einnig án þjálfara en félagið hefur meðal annars rætt við Hallgrím Jónasson, fyrrum þjálfara KA.
Ríkharður Daðason hefur verið sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá Gróttu og þykir líklegur.
Þá er Völsungur á Húsavík einnig án þjálfara en félagið hefur meðal annars rætt við Hallgrím Jónasson, fyrrum þjálfara KA.

Ríkharður Daðason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |