Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 24. janúar 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Manchester United skoðar Slimani og Ighalo
Islam Slimani.
Islam Slimani.
Mynd: Getty Images
Manchester United vill fá framherja á stuttum samningi út tímabilið þar sem Marcus Rashford verður frá keppni næstu mánuðina.

Að sögn Sky Sports koma Odion Ighalo og Islam Slimani meðal annars til greina.

Hinn 31 árs gamli Slimani er í láni hjá Mónakó frá Leicester en United gæti reynt að fá hann á láni.

Ighalo er á mála hjá Shanghai Shenhua í Kína en hann á tvö ár eftir af samningi sínum þar.

Hinn þrítugi Ighalo var keyptur til Kína árið 2018 eftir öfluga frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni með Watford.

Athugasemdir
banner
banner
banner