Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. janúar 2021 05:55
Victor Pálsson
England í dag - Liverpool á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Það er leikið í enska bikarnum í dag og í kvöld en þar fer á meðal annars fram stórleikur á Old Trafford í Manchester.

Manchester United fær Liverpool í heimsókn klukkan 17:00 en þessi lið voru að mætast í ensku úrvalsdeildinni.

Um er að ræða tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar en leik þeirra lauk með markalausu jafntefli á dögunum.

Það verður vonandi boðið upp á frekari skemmtun í leiknum í kvöld en um er að ræða 16-liða úrslitin.

Chelsea, Leicester, Fulham, Burnley og Everton eru einnig í eldlínunni og eru þar með talin öll úrvalsdeildarfélögin.

Hér má sjá dagskrána í dag.

Enski bikarinn:
12:00 Chelsea - Luton
14:30 Brentford - Leicester
14:30 Fulham - Burnley
17:00 Manchester United - Liverpool
20:00 Everton - Sheffield Wednesday
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner