Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 24. janúar 2021 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fernandes steig upp - Sjáðu aukaspyrnumark hans
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes var hetja Manchester United þegar liðið lagði erkifjendur sína í Liverpool að velli í fjórðu umferð enska bikarsins á þessum sunnudegi.

Fernandes byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður í stöðunni 2-2.

Á 78. mínútu smellti hann svo aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn beinustu leið í netið.

Markið hjá Portúgalanum má sjá hérna. Hann setti boltann í markmannshornið en Alisson náði ekki að verja.

Eftir markalaust jafntefli við Liverpool í deildinni um síðustu helgi var Fernandes harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína og fyrir að spila ekki nægilega vel í stórleikjum. Í kvöld sýndi hann hvers megnugur hann er með innkomu sinni.
Athugasemdir
banner
banner