Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. janúar 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Giroud vill klára ferilinn í Mílanó
Mynd: EPA
Olivier Giroud, markahæsti leikmaður franska landsliðsins frá upphafi, vill klára feril sinn hjá ítalska félaginu AC Milan.

Samningur Giroud hjá Milan klárast eftir þetta tímabil en hann vonast til að framlengja við félagið á næstu dögum.

Giroud, sem er 36 ára gamall, kom til Milan frá Chelsea fyrir tveimur árum og hefur vegnað ágætla í Mílano.

Hann hefur skorað 23 mörk í 62 leikjum en hann vonast til að klára ferilinn á Ítalíu.

„Ég vil framlengja samning minn við Milan. Við erum í viðræðum um að ganga frá þessu og vonandi klára ég ferilinn hér,“ sagði Giroud.
Athugasemdir
banner
banner
banner