Knattspyrnusamböndin í Englandi, Írlandi og Skotlandi hafa sett reglur um að börn yngri en 12 ára megi ekki æfa skallabolta á æfingum.
Á aldursbilinu 12 til 16 ára geta börn byrjað að æfa skallabolta en þó í litlu magni. Bannið gildir á æfingum en ekki í leikjum.
Á aldursbilinu 12 til 16 ára geta börn byrjað að æfa skallabolta en þó í litlu magni. Bannið gildir á æfingum en ekki í leikjum.
Bannið kemur í kjölfarið á rannsókn frá því í fyrra þar sem fram kom að 3,5 sinnum líklegra er að fyrrum fótboltamenn verði fyrir heilabilunum en annað fólk á sama aldri.
7676 leikmenn sem spiluðu í Skotlandi á árunum 1900 til 1976 voru bornir saman við 23 þúsund aðila sem spiluðu ekki fótbolta og í ljós kom að fótboltamennrnir voru mun líklegri til að glíma við heilabilun á efri árum.
Á árum áður voru fótboltar ekki jafn þróaðir og í dag og boltarnir urðu talsvert þyngri, til dæmis í bleytu.
Sjá einnig:
3,5 sinnum líklegra að fótboltamenn verði fyrir heilabilun
Athugasemdir