Fotbolti.net
24.02.21 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Mane kemur Firmino til varnar

Mane kemur Firmino til varnar
Canon

Mynd: Getty Images

Sadio Mane hefur komið liðsfélaga sínum Roberto Firmino til varnar. Firmino hefur fengið gagnrýni undanfarnar vikur en Liverpool hefur gengið illa að skora.
„Hann verðskuldar meira hrós en ég og Mo (Salah), það er klárt. Þetta er hins vegar hluti af fótboltanum, fólk horfir alltaf á mörk skoruð," sagði Mane.

„Án Bobby sé ég ekki að ég og Mo myndum skora svona mikið af mörkum í hreinskilni."

„Hann gerir allt auðveldara fyrir okkur. Brasilíska landsliðið er heppið að hafa Firmino. Ég hef alltaf sagt við Bobby: 'Þú þarft að skipta um ríkisfang og koma til Senegal."

„Fyrir mig yrði það draumur. Ég elska hann. Ég held að hann sé uppáhalds liðsfélagi minn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.