24.03.16 - 22:38
Magnús Már Einarsson

Hörður Björgvin: Held að við komumst líka á annað stórmót
Auglýsing

Hörður í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Síðustu 20 mínúturnar vorum við sterkari fannst mér. Við sóttum meira og vorum óheppnir að skora ekki tvö mörk,\" sagði Hörður Björgvin Magnússon við Fótbolta.net eftir 2-1 tapið gegn Dönum í kvöld.
Hörður Björgvin spilaði alla leikinn í vinstri bakverði en þetta var hans fyrsti landsleikur í heilt ár.
Hörður Björgvin spilaði alla leikinn í vinstri bakverði en þetta var hans fyrsti landsleikur í heilt ár.
„Ég bíð rólegur og þegar tækifærið kemur þá reyni ég að nýta það eins vel og ég get. Ég reyni að sanna mig með félagsliðinu og halda áfram. Vonandi kemur kallið síðan,\" sagði Hörður sem segist lítið vera að spá í því hvort hann verði í hópnum sem fer á EM.
„Það kitlar alltaf og maður hugsar um EM. Það er samt ekki rétt að hugsa um það þegar þú ert að spila með félgsliðinu og ert að gera þitt besta þar. Það er draumur hjá öllum að komast á EM en ef maður hugsar til framtíðar þá held ég að við komumst líka á annað stórmót.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.